I don't suffer from insanity...I enjoy every minute of it...
Könnun

Engin könnun í gangi, athugaðu aftur seinna.
13.12.2008 23:33:59 / herdis

En hvað svo...?

Styttist í jólin... Hlakka til að komast norður og hitta familíuna og stelpurnar:D Gaman!

Svo er það komið á hreint...eftir áramót þá er ég að fara í grunnnám fataiðna hérna fyrir austan. Held að það verði bara gaman. Læri að gera fullt af flottum fötum:D

En hvað svo?
...
...
...
Flytja til Akureyrar, fara í HA og læra sálfræði?
...
Flytja suður og fara í Hússtjórnarskólann?
...
Flytja suður og fara í HÍ og læra sálfræði og rússnesku?
...
Flytja til Danmerkur og verða kökugerðarmeistari?
...
Flytja til Ítalíu og læra fatahönnun?
...
Flytja suður og læra snyrtifræði?
...
Fara til Havaí og verða köfunarkennari?
...
Flytja til New York og gerast kynlífsdálkshöfundur?
...
Flytja til Los Angeles og fá mér vinnu við að skipuleggja brúðkaup?
...
Flytja til Afríku og hjálpa fólki?
...
Setjast að á Reyðarfirði og eignast 12 börn?

Hver veit...?

Kemur í ljós...



» 4 hafa sagt sína skoðun

09.12.2008 11:39:34 / herdis

Betra seint en aldrei...

Mottóið mitt...enda yfirleitt sein. Það byrjaði allt daginn sem ég fæddist, enda ekki nema 6 dögum of sein á svæðið, og hefur ekki hætt síðan... En það er önnur saga...

Yours truly er enn á hjara veraldar, en skrapp í borg lastanna yfir helgina. Það var bara gaman. Það var VERSLAÐ, borðaður góður matur, djammað, út að borða á Caruso, farið í heimsóknir og haft það kósí.
Ætluðum að reyna að láta fólkið okkar fyrir sunnan hafa pakkana sína núna og því var tekin ofurinnpökkun síðasta daginn fyrir sunnan. Sjaldan eða aldrei krullað svona marga borða á svona stuttum tíma.Herdís ofurinnpakkari og hennar dyggi aðstoðarmaður Adam, sem var mjög duglegur að rétta hjálparputta í slaufugerðinni.

Vaknaði með hor og smá hálsbólgu í morgun. Ekki alveg það sem ég var að vonast eftir svona í morgunsárið. En maður lætur það ekki á sig fá...heldur situr slefandi inni í rúmi og bloggar...

Fór á konfektnámskeið um daginn og gerði þetta líka dýrindiskonfekt. Molarnir litu út eins og litlir jólapakkar, með slaufu og allt. Og reyndust síðan vera svona líka svakaleag góðir líka. Fór strax og keypti mér allar græjur til að geta gert það heima. Þannig að núna verð ég bara í því að gera konfekt og svoleiðis skemmtilegheit:D

En við skulum segja þetta gott í bili.

Herdís konfektgerðarmeistari með meiru


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.11.2008 10:17:12 / herdis

...

Það styttist í blogg...ég lofa:)

» 0 hafa sagt sína skoðun

28.10.2008 23:42:02 / herdis

Pæling...

...af hverju á fólk svona erfitt með að hringja þegar það segist ætla að gera það...?

» 2 hafa sagt sína skoðun

13.10.2008 22:27:28 / herdis

Hor og slef...

Vegna ábendinga frá Sigríði Theodóru þá vil ég koma því á framfæri að Adam, sem minnst var á í þarseinasta bloggi, er víst kærastinn minn. Sei sei já!

Ég er eins og er stödd heima í sveitinni hjá mömmu og pabba og co. og þetta var mjög skemmtilegt...þ.e.a.s. þangað til seinni partinn í dag. Því þá greindi móðir mín og systir mín mig með vott af hita. Sem væri svo sem ekki frásögufærandi, nema fyrir þá parta að í kjölfarið mættu vinir mínir Hausverkur, Hálsbólga og Beinverkur. Skemmtilegt partý þar á ferðinni... Þið viljið nú varla missa af því. Ha? Í alvöru? You do? En hvað þið eruð eitthvað skrítin...
Beinverkir í kinnbeini hægra megin...hressandi? Ekki svo mjög...

Annars hef ég bara verið með my precious, hana Hólmdísi, og eitthvað með Skarpa og allri familíunni núna um helgina og haft gaman af. Svo er bara spurning hvenær ég manna mig upp í það að hunskast til að keyra aftur austur.

Adios


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.10.2008 14:46:10 / herdis

Félagsmálamógúll?

Dagur 3 sem heimavinnandi húsmóðir.

Var rosalega góð húsmóðir í gær. Var að blaða í gegnum nýju, fínu matreiðslubókina mína. Fann þennan líka fína kafla um kökur og eftirrétti og fann þar þessa dýrindisuppskrift af muffins. Ákvað að prófa að baka og Adam vildi endilega fá blueberrymuffins og það fékk hann. Honum fannst þær góðar, mér fannst vanta súkkulaðið...
Svo eldaði ég þennan líka dýrindis fiskrétt...algjört skáldverk...en tókst svona líka lummu vel.

Svo er stefnan sett heim um helgina. Get ekki beðið eftir að hitta familíuna. Fer á föstudagsmorgun og kem aftur á hjara veraldar á mánudag.

Í næstu viku kemur í ljós hvort að ég verð félagsmálamógúll eður ei...tel það samt mjög líklegt að ég verði það. Kem inn á það aftur síðar...don't want to jinx it...

Adios


» 2 hafa sagt sína skoðun

06.10.2008 20:08:16 / herdis

Á hjara veraldar

Svona í tilefni þess að það er rúmlega ár síðan ég bloggaði síðast þá ákvað ég að skella eins og einu slíku hérna inn á.

Síðan ég bloggaði síðast hefur ýmislegt gerst. Ætli maður hafi þetta ekki bara svona skemmtilegt punktablogg;)

  • Ég eignaðist litla frænku 31. ágúst í fyrra. Hún heitir Hólmdís Rut og er dásamleg. Búin að passa hana mjög oft og haft mjög gaman af, og auðvitað bróður hennar líka, hann Skarphéðinn Ívar. Ég er meira að segja guðmóðir hennar.
  • Sama dag og litla skvís fæddist þá dó ástkær afi minn eftir að hafa fengið 2 heilablóðföll á stuttum tíma. Þessi maður var einhver besti maður sem ég hef á ævi minni kynnst og ég mun sennilega aldrei hitta neinn eins og hann. Ég lít upp til hans og mun alltaf gera, því annað eins hörkutól held ég að hafi ekki gengið á jörðinni. Þessi maður hafi níu líf. Ég trúi því að hann vaki yfir mér og passi mig. Afi, ég sakna þín ekkert smá og ég mun aldrei gleyma þér.
  • Ég fór í útskriftarferð til Rhodos. Sem er í rauninni ekki frásögufærandi...
  • Byrjaði í 4.A í MA.
  • Vann í Mössubúð á Glerártorgi með skóla alveg þangað til í júní.
  • Í apríl fór ég til Heidelberg í Þýskalandi. Mjög rómó borg, fyrir ekki svo rómó manneskju. Ágæt ferð engu að síður.
  • Ég útskrifaðist af málabraut Menntaskólans á Akureyri. Til hamingju ég!
  • Flutti í 101 til Adams.
  • Byrjaði að vinna á elliheimilinu Hrafnistu. Lærði mjög mikið á því, sér í lagi þolinmæði.
  • Flutti á Reyðarfjörð með Adam til að vinna hjá Alcoa.
  • Hætti hjá Alcoa eftir að hafa lent á ömurlegri vakt...ekkert rosalega hress andi á því svæði. Út af vöktunum þá þurfti maður að snúa sólarhringnum gjörsamlega við á nokkurra daga fresti, þannig að ég fékk ekki neinn svefn og endaði með því að vera lasin í ca. 2 vikur. Svo ýmislegt fleira sem ég var ekki sátt með þannig að í fyrsta sinn á ævinni hætti ég í einhverju sem mér mislíkaði.
  • Í dag var minn fyrsti dagur sem heimavinnandi húsmóðir og á morgun er ég að fara að hringja í eina ágæta konu til að rabba við hana um tvö störf.
Held að þetta sé líf mitt undanfarið ár svona í grófum dráttum.

Endilega kíkið á könnunina hér til hliðar.

Adios:)


» 3 hafa sagt sína skoðun

22.08.2007 14:04:51 / herdis

It's alive, it's alive!!!!

*and the crowd goes nuts*

Svona í ljósi þess að ég er búin að vera að hanga upp á sjúkrahúsi síðan klukkan 8 í morgun, og hef ekki haft neitt að gera síðan 11 þá ákvað ég að hunska mér í það að blogga.

Hvað er ég búin að vera að gera sniðugt...?

Jú ég fór til Portúgals í júní, og það eina sem ég þurfti að borga í þeirri ferð var hótelherbergi í 2 nætur sem kostaði rétt rúman 7000 kall, og þá er minibars draslið innifalið. Já og svo auðvitað draslið sem ég keypti mér. Við fórum til Parades des Courra (það er allavega mjög svo næstum því skrifað svona) og svo vorum við líka í Porto sem er snilldar borg. Paredes var allt í lagi, og það merkilegasta við þann bæ er að það var allt í skóbúðum þarna, which wasn't bad, en hins vegar þá hefði ég ekki getað fundið matvörubúð þarna to safe my life. Við Guðrún stúderuðum þetta og löbbuðum út um ALLT! og fundum svo gott sem bara einhverja sapataria (skóbúð;), sem var einmitt fyrsta portúgalska orðið sem ég lærði. Næsta orð sem ég lærði er ekki við hæfi, plús það að ég kann ekki að skrifa það.

 Svo náttúrulega vann ég í Nettó þangað til að ég sá einhverja auglýsingu í dagskránni, þar sem auglýst var eftir læknaritara. Ég ákvað að slá til og prófa bara að sækja um, og viti menn! Ég var bara ráðin á staðnum, og ég var svo þvílíkt hamingjusöm þegar ég áttaði mig á því að ég hefði fengið starfið að ég steingleymdi að spyrja út í launin. Byrjaði þar 1. júlí og svo er síðasti dagurinn minn núna á föstudaginn.

Hvað fleira...?

Ég er að verða meiri móðursystir þann 6. september nk. Sem er bara engan veginn heppilegur tími fyrir mig, þar sem ég verð jú úti á Rhodos, þannig að ég bað systur mína vinsamlegast um að poppa litlu skvísunni út áður en ég færi eða þá að hún yrði bara að gjöra svo vel að krossa lappirnar og bíða þangað til 15. september...as you can imagine, þá valdi hún fyrri kostinn.

Svo er ættarmótaaldan gengin yfir, en það voru heil 3 ættarmót hjá mér í sumar. Eitt á Laugarbakka, sem var svo mikil snilld að ég gæti hreinlega kafnað í eigin hamingju. Svo var næsta fyrir austan, í Jökuldal, og þangað kom Systa vinkona með sem andlegur stuðningur með meiru, enda alveg rosalega mikið álag sem fylgir ættarmótum...eða eitthvað... Svo var 3. ættarmótið á vestfjörðum, í Dýrafirði *hvæs*, og það var algjör "portúgalska orðið sem er ekki við hæfi" snilld, nema sunnudagurinn var ekkert svo dásamlegur fyrr en eftir kl. 19 um kvöldið. Þannig að eins og þið eruð væntanlega farin að gera ykkur grein fyrir þá er hún ég svona einhvers konar næstumallrafjórðungakvikindi.

Hvað er það sem gerir það að verkum að takkar, og þá sérstaklega þeir sem má ekki koma við, eru svona ótrúlega...ípotanlegir (sem btw. er gott og gilt íslenskt orð, alltof lítið notað;)? Bara pæling...

Nú held ég að ég hljóti að vera búin að vinna upp eitthvað af þessu bloggleysi...allavega smá...


» 5 hafa sagt sína skoðun

26.07.2007 17:50:49 / herdis

hmm...

Ég ætti sennilega að hunska mér í það að blogga er það ekki?

» 5 hafa sagt sína skoðun

19.12.2006 17:25:46 / herdis

...

Hmmm...blogga? Nú er ég að horfa á myndina Lemony Snicket’s A Series Of Unfortunate Events með Jim Carrey. Endemis snilld sem þessi mynd er:D

Annars er það mjög merkilegt hversu þreyttur maður getur orðið...ég er bara búin að vera sofandi síðan í síðustu viku. Er kannski með opin augun og svoleiðis en það er ekkert í gangi þarna uppi...the engine may be running but there’s no one behind the wheel. Steinsofnaði t.d. í náttúrufræði í gær, og í lok tímans þá var Ragna að reyna að vekja mig í 5 mínútur og þá reisti ég mig víst aðeins við, sagðist vera vakandi, lagðist niður aftur og lokaði augunum. Ég er náttúrulega vægast sagt dásamlega þegar ég að nývöknuð/sofandi.

Svo er víst aðfangadagur eftir...u.þ.b....já 5 daga...sem er alveg óþarflega stuttur tími. Nenni eiginlega ekki að hafa jólin strax. Ég hlakka ekkert til, en það er væntanlega af því að ég er mjög langt frá því að vera eitthvað jólabarn. Svona fyrst maður er byrjaður að skrifa um jólin þá verður maður eiginlega að tuða aðeins yfir þessari þróun með jólaskrautið. Er virkilega þörf á því að byrja að skreyta um miðjan nóvember??? Tjahh...bara fyrirvelting.

Jæja...ég ætla að segja þetta gott í bili og fara að einbeita mér að því að horfa á Invader Zim...hehehehe góðir þættir sko.

En allavega, verið þið sæl að sinni;)


» 9 hafa sagt sína skoðun

01.12.2006 12:45:27 / herdis

Vinstri stóra táin

Í ónefndum dansi, inni í ónefndri stofu, inn í ónefndum skóla, í ónefndum bæ, á ónefndu landi sem liggur í ónefndu hafi, brotnaði tánögl á vinstri stóru tá ónefndrar stúlku. Þessi ónefnda stúlka er ég.

Þetta var athyglisvert í meira lagi...ég var í háum hælum í þessum dansi (9 cm hælar á þessum annars unaðsamlegu skóm) og við vorum að gera einhvern nettan snúning, og í þessum snúningi þurfti hægri fóturinn að fara yfir þann vinstri, sem er nú ekki frásögu færandi nema fyrir þá parta að í þessum snúningi náði ég einhvern veginn að reka hælinn á hægri skónum í vinstri stóru tánna á mér. Fann ekkert fyrir því. Varð bara litið niður og þá var nöglin orðin eitthvað skrítin, en mér datt ekkert annað í hug en að ég hlyti bara að vera með kusk á tánni eða eitthvað slíkt. Stuttu síðar varð mér aftur litið niður og þá rak ég nú heldur betur upp stór augu, því úr tánni á mér fossaði óþarflega rauður vökvi í óþarflega miklu magni.

Jú, herrar mínir og frúr, við þetta, að því er virtist í fyrstu, litla og ómerkilega högg klofnaði nöglin aðeins upp fyrir miðja nögl og síðan byrjaði bara að fossblæða, bæði úr þessari sprungu sem og undan framanverðri nöglinni. Hressilegt það.

Núna er táin innpökkuð í plástra, og það er ekki það þægilegasta í heimi að vera í skóm. Sem er fullkomið. Þannig að ég verð innpökkuð í plástra á arshátíðinni, en það er allt í lagi svona í ljósi þess að ég fæ alveg über krúttlegan bangsaplástur hjá henni Sölku minni. I love you, darling *kiss*


» 6 hafa sagt sína skoðun

09.11.2006 17:14:40 / herdis

Niðurstöður könnunar

Þar hafiði það...þið haldið því semsagt fram að þið séuð þokkar upp til hópa...if you guys say so;)


» 9 hafa sagt sína skoðun

05.11.2006 22:40:26 / herdis

Dohhh...

Sko, ég stóð í þeirri meiningu að það væru takmörk fyrir því hversu lélegir þættir væru sýndir í sjobbanum, en það virðist ekki vera. What kind of genious dettur það í hug að sýna þáttinn Numbers?!?!?!?:whut: Fyrir þá sem ekki vita þá er það sakamálaþáttur þar sem rosalega dularfull og flókin mál eru leyst með hjálp stærðfræðinnar...idiots...rétt í þessu var hann (aðalstæðrfræðingurinn sko) að fá aðdáendabréf frá einhverri gellu sem dáðist svo rosalega að stærðfræðihæfileikum hans...common people! Þetta er bara það heimskulegasta sem ég hef nokkurn tíman séð...,,hvar ætli morðinginn/sniper-inn hafi verið þegar hann skaut...?" ,,Bíddu, bíddu, bíddu, ég diffra þetta bara og þá kemur það í ljós"...,,hver ætli morðinginn sé?"...,,Bíddu, bíddu, bíddu sko, notum bara pýþagórasar-regluna á þetta og þá mun það koma í ljós." It is just absolutely ridiculous *sagt með mjög svo breskum og snobbish hreim*

Borg lastanna, borg óttans...þar er ég stödd núna...eða reyndar ekki, er eiginlega í Kópavogi, en það er klárlega aukaatriði. Er, aldrei þessu vant, búin að kaupa mér frekar lítið. Er bara búin að kaupa mér 3 boli, en svo á ég eftir að fara í nokkrar búðir á morgun áður en ég og mín ástkæra móðir munum halda heim á leið.

Ég er farin að pirra sjálfa mig...ég nenni aldrei neinu, er alltaf þreytt sama hversu mikið ég sef, borða of mikið, hreyfi mig of lítið, læri aldrei, æfi mig ekki nóg á píanó og vinn ekki nógu mikið. Samt finnst mér ég hafa alveg nóg að gera með það sem ég geri...ÉG VIL VERA DUGLEG!

Svo kemur að því að ég setji lista hérna inn á sem ég er búin að vera að gera í staðinn fyrir að læra í tímum og svona;) Góð ég...

Svo erum við Systa að fara að skella okkur á tónleika þann 30. nóv. næstkomandi. Fram koma Magni, Dilana, Storm og Toby ásamt húsbandinu úr Rockstar þáttunum. Held að það eigi eftir að vera bara mjög svo hressilegt, og væntanlega eitthvað rúmlega það:haha:

Held að ég láti þetta duga í bili...maður má nú ekki blogga yfir sig þegar maður gerir þetta svona sjaldan.

Until next time...enjoy;)


» 9 hafa sagt sína skoðun

04.11.2006 00:24:47 / herdis

...

Mig langar...

» 2 hafa sagt sína skoðun

08.10.2006 23:12:34 / herdis

*andvarp*

Mig langar svo að vera dugleg...en það bara virðist vera algjörlega ómögulegt. Ætlaði mér svo stóra hluti í vetur, ætlaði að gera svo margt en svo er maður engan veginn að nenna þessu lengur.

Ég vil vera dugleg...


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2